Salka að hjóla og ýmislegt!
09/02/06 05:50
Eins og glöggir taka eftir þá má sjá hér til hliðar
"Myndbönd" og þar má einmitt sjá myndskeið af Sölku
hjólandi! Hún er búin að vera rosalega dugleg að æfa
sig að hjóla eftir að annað hjálpardekkið skaust af
þegar við klesstum á kannt á Thayer Street. Daginn
eftir tókum við síðan hitt hjálpardekkið af og "the
rest is history" eins og þeir segja hérna í landi
hinna frjálsu og stoltu. Endilega kíkið á dömuna
spreyta sig á hjólinu. Annars er héðan allt gott að
frétta, hitinn loksins dottinn niður fyrir frostmark
og við farin að vonast eftir snjó! Síðustu helgi þá
fór ég í leiðangur með þremur úr stærðfræðideildinni
upp til Mt. Snow í Vermont sem var mikil
snilld! Var með alveg hrikalegar harðsperrur
eftir en það var nú samt þess virði! Við bíðum
spennt eftir meiri snjó svo hægt sé að skreppa
með Sölku til Yawgoo Valley sem er skíðasvæði
hérna í grenndinni. Frúin hefur það gott og
litli bumbubúinn sparkar í hana af áfergju. Við
erum einmitt í leiðinni í skoðun í fyrramálið og
bíðum spennt. Við bíðum hins vegar ekki svo
spennt eftir píparanum sem á að koma til okkar
klukkan 7 í fyrramálið til þess að laga
klósettið okkar sem lekur...
|