enn meira af Villu af neðri hæð!
27/04/07 18:55
Kyrjunin heldur áfram hjá Villóbí. Á föstudaginn
fyrir viku var hún með einhverja seremónýju þar sem
hún og kyrjunarflokkurinn hennar sló á trommur,
kyrjaði og þagði svo inn á milli til kl 2 um
nóttina.. Við Árni Már hittum hana hér fyrir utan á
föstudeginum og þá tilkynnti hún okkur það að hún
yrði með seremónýju um kvöldið og að hún yrði lengi
frameftir og sagði að það myndi ekki gerast aftur..
Við Árni brostum bara hvort til annars og svo lét
Árni slag standa og spurði sakleysislega hvort okkur
væri boðið.. Villa sagði að því miður væri okkur ekki
boðið..
Miklar vangaveltur voru hér í gangi um kvöldið þegar trommusláttur og kyrj ómaði um gangana.. "hvað ætli þau séu eiginlega að gera?" "hvað varð til þess að Villa fór allt í einu að kyrja svona svakalega?" "er þetta trúarsöfnuður?" og svona ýmislegt
það hlýtur að hafa verið gaman í seremónýjunni því gestirnir fóru ekki fyrr en rúmum sólarhring eftir að þeir komu!
-Emma
ps. það eru komin ný myndbönd á myndbandasíðuna!

|