nýtt nýtt nýtt..
29/06/07 15:38
jæja þá virðast erfiðleikarnir vera yfirstignir
mikið er ég glöð!
pabbi er að koma frá texas núna á eftir - mikið verður gaman að sjá hann, kallinn.. líður einhvern veginn alltof langt á milli. Svo kemur elskuleg mamma mín á mánudaginn - ég hef bara séð hana 2 daga á þessu ári og síðustu 8 mánuði ef maður fer að spá betur í það.. hún er greinilega of upptekin, konan, en hún er búin að lofa að vera hér í afslöppun og notalegheitum í 11 daga! vei vei vei..
skelli inn myndum af Kolku litlu - sem er nú ekkert lítil lengur, hærri en borðstofuborðið, fimari en köttur og léttari en Salka var 8 mánaða held ég alveg örugglega
það er alveg ótrúlegt hvað þær eru
ólíkar í vextinum systurnar.. en bara gaman að
því..
sjáiði lubbann??
svona er maður orðinn stór, situr bara á fullorðinsstól og borðar brauð
litla sæta..
er soldið mikið fyrir það að rífa út úr eldhússkápunum, hleypur með það út um alla íbúð og byggir turna!
Salka virðist einhvern veginn aldrei nást á mynd enda er brjálað að gera hjá henni, stelpunni, á öllum sumarnámskeiðunum sínum og með bókuð playdate margar helgar í röð! en hún er hress og kát og hlakkar mikið til að koma til íslands, sérstaklega eftir að Árný amma hringdi í hana um daginn.. Mikið verða skemmtilegir endurfundir þá!
hér koma myndir af Sölkunni á ballettsýningunni (myndirnar eru frá foreldrum Noru, Connie og Reinhard):
Hópurinn hennar Sölku.
Salka mjög einbeitt!
Salka og Nora besta vinkona hennar úr skólanum
hafið það ofsalega gott í góða veðrinu á íslandi..
knús Emma

|