Hrekkjavökufjör

Hæ fólkens.

Við gerðum örlitla breytingu á síðunni okkar - núna er tvö nýjustu myndaalbúmin hérna beint til vinstri, í stað þess að vera undir "Myndir". Vonandi villist enginn. Í nýjasta albúminu eru myndir frá hrekkjavökunni, sem var mikil snilld. Við fórum út að hrekkja og sníkja nammi með Huldu og Þormari og það var svaka gaman. Fólk var í miklu stuði og gjafmilt á nammið. Við sitjum því uppi með heilan haug af nammi, sem við endum líklega á að gefa íkornunum. Þeir eru í óða önn að fita sig fyrir veturinn þannig að þeir geti lagst í dvala. Þeir eru ótrúlega fimir og geta hlaupið upp og niður trén og hoppað á milli þeirra án mikillar fyrirhafnar. Innfæddir halda eflaust að við séum stórskrítin því við horfum alltaf á eftir þeim flækjast um trén því okkur finnst þeir svo fyndnir, en heimabúar eru löngu orðnir vanir þeim. Það ætti eiginlega að flytja nokkra íkorna til Íslands - þeir væru góð viðbót í dýraríkið, ásamt krókódílum, strútum og lamadýrum.

Ble,
Henning
|