Viðhengið gefur mér Grindverk!
13/02/08 04:50
sælinú..
núna get ég ekki sofið fyrir grindverk (verkir í grind og lífbeini) og engin stelling nógu góð - enda bara tvær sem ég má vera í, á hægri hliðinni eða vinstri hliðinni.. Ég er með svo marga kodda í rúminu (til þess að styðja við hina ýmsu líkamsparta) að það er varla pláss fyrir Henning við hliðina á mér..
Nóttin í nótt er ein af þessum verstu nóttum þar sem ég er svo kvalin að ég vakna við sársaukann í hvert sinn sem ég hreyfi mig (og já, ég er ekki að ýkja, því miður). En ég á sem betur fer tíma hjá lækninum í fyrramálið og svo er hún elskuleg móðir mín búin að bjóða mér í nálastungur seinna í dag! ég er ekki frá því að ég sé hálf smeyk við að fara í nálastungur, það hljómar, af einhverju dularfullum ástæðum, ekkert sérlega þægilegt! En hvað gerir maður ekki til þess að losna við þetta Grindverk sem ég fékk með Viðhenginu!
þetta er áttunda bloggið mitt í febrúar og meirihlutinn af því er kvart og kvein - en það er svo agalega gott að geta kvartað hér því þá er ég ekki að kvarta við mína nánustu á meðan.. Mig grunar nefnilega að þeir (nánustu) séu orðnir frekar þreyttir á mér og ég pirruð á því að þeir skilji ekki hverju viðbjóðslega sárt þetta er..
en yfir í annað, hún Kolka litla er ennþá með hor og svaka hósta.. Hún fær alveg hræðileg hóstaköst þegar hún sefur en það virðist ekki trufla hana jafn mikið og okkur.. Við fórum með hana til læknis í fyrradag (mánudag) og hún fékk pensilin enda búin að vera kvefuð í 10 daga og engin merki um bata. Hún var líka með smá roða í eyrunum en lungun hrein og fín.. Nú vonum við bara að hún fari að hressast!!
Salkan er svo í vetrarfríi þessa vikuna en fer í eitthvert svakalegt stuðpartý í kirkjuna á eftir kl 9.. Þar verður hópur af 6-9 ára krökkum í leikjum, fræðslu, tónlist og bíói og í hádeginu fær hún pylsu og safa - alvöru partý bara!
hafið það gott,
Grindverka-Emma

|