kynning á Villóbí..
18/04/07 00:39
mig langar að segja ykkur sögu um hana Villóbí sem
býr hér á fyrstu hæðinni.. Hún er sálfræðinemi sem
býr í nákvæmlega eins íbúð og við erum í (3
svefnherbergi, 2 klósett, eldhús, borðstofa og stofa)
og býr þar ein með hundinum sínum.. Hún fer að sofa
fyrir kl 10 öll kvöld og heilsar sjaldan þegar við
mætum henni í innkeyrslunni enda yfirleitt í
hrókasamræðum við hundinn sinn.. Henning hitti hana
nú samt einu sinni þegar hún var ekki að ræða við
hvutta og þá segist hún vera að hugsa um að hætta að
leigja hér og fara í hugleiðlsubúðir í einhverja
mánuði.. og svo á sunnudaginn þá byrjar fjörið..
Villóbí var með gesti og þau eru að kyrja á fullu í
stofunni og það var opið fram á gang (hurð sem hún
notar eingöngu til þess að sækja póstinn sinn ca 1x í
viku) og reykelsislyktina lagði um allan stigagang og
ég er nokkuð viss um að þau hefðu ekkert tekið eftir
því þótt ég hefði skotist inn til þeirra og bæst í
kyrjunarhópinn.. Við á efrihæðinni vorum frekar hissa
á þessu en höfðum lúmst gaman að þessu og flissuðum
og tístum í sífellu þar til þetta hætti.. Í gær komum
við svo heim eftir að hafa sótt Sölku fótgangandi í
skólann og þá er hún aftur með kyrjunarhópinn og þau
kyrja og kyrja..
Er búin að vera að reyna að setja inn myndbönd en það virðist ekki ganga.. bið henning um að kíkja á það þegar hann kemur heim úr skólanum..
hafið það ætíð sem best,
Emma og hinir.
Er búin að vera að reyna að setja inn myndbönd en það virðist ekki ganga.. bið henning um að kíkja á það þegar hann kemur heim úr skólanum..
hafið það ætíð sem best,
Emma og hinir.
|