fyrsta afmælið búið!

hæhæ og hó..
það líður alltaf frekar langur tími milli færslna núna.. en hver veit, kannski koma þær örar núna.. En þið verðið þá að vera dugleg að kommenta!

Kolka er búin að eiga sitt fyrsta afmæli. Alveg ótrúlegt hvað tíminn líður.. Hún var nú samt lasin á afmælisdaginn, með hita og pínu kvef. En við bökuðum nú samt köku og héldum smá afmælisveislu bara fyrir fjölskylduna.. Það var voða gaman og hún fékk alveg fullt af pökkum (og Salka líka) - takk fyrir það allir! Kolka hafði samt ekki orku í að taka alla pakkana upp á sjálfan afmælisdaginn þannig að það var klárað í dag!
Kolka er orðin hress núna og er að breytast í enga smá frekju! Laugh Hún vill bara vera úti og helst ekki í kerrunni, vill bara æfa sig að labba og svo skríða um allt, koma við blómin sem hafa dottið af trjánum og grafa í sandi sem er á gangstéttunum! og ef foreldrarnir hafa önnur plön en að vera úti á stétt þá bara sturlast sú stutta og leggst í jörðina og gargar! (ætli þetta sé nokkuð terrible two að byrja svona svakalega snemma??)

Salka fékk kvef í lok síðustu viku en hefur náð því að verða ekki veik, þarf bara að snýta sér nokkrum sinnum á dag en er alveg hress - sem betur fer..

Við fórum með Fríðu og Úlfar í PikkNikk í stærðfræðideildinni, rosa fjör.. við fengum gott veður, góðan mat og bús Laugh Við nýttum okkur líka pössunina vel og fórum tvisvar sinnum til Conniar og Joes að spila - okkur stelpunum gengur nú ekkert sérlega vel samt þessa dagana.. vonandi snýst það á rétta leið bráðum..

Henning er að fara í Topics prófið í fyrramálið! það er 40 mínútna fyrirlestur sem hann heldur fyrir 3 prófessora og þeir mega svo spyrja hann út úr í 40 mínútur! Hann er búinn að vera að lesa fyrir þetta í marga mánuði svo það verður svaka léttir þegar þetta verður búið!

hafið það gott!
kveðjur úr vorinu í providence..
|