Nýjar myndir!

Var að smella inn glóðvolgum myndum. Á morgun fer ég upp til Boston að sækja Kristinn sem ætlar að koma og vera hjá mér í nokkra daga. Hugsa að ég plati hann með mér í IKEA til þess að skipta gölluðum klósettskáp. Hef verið án spegils inni á klósetti í alla vegana tvær vikur og er orðinn töluvert loðinn í framan... Við ætlum líka að kíkja í heimsókn til Braga í New York sem verður örugglega mikil snilld! Annars bið ég kærlega að heilsa til Íslands og allir verða að muna að knúsa Emmu og Sölku frá mér!

-Henning
|