Akkalú lætur vita af sér!
15/11/05 03:08
Góða kvöldið góðir hálsar!
Við höfum skemmtilegar fréttir að færa: Akkalú nokkur Þurrum, bumbulaumufarþegi með meiru, lét vita af sér með spörkum og hristingi í dag! Við hlökkum orðið mikið til að fara í 20 vikna sónar þar sem möguleiki er að fá að vita hvort Akkalú ber nafn með rentu! (Akkalú er strákanafn.) Þetta er ótrúlegt!
Það er komin ágætis hefð fyrir því að monta sig af veðrinu hérna þannig að hér kemur það: ÞAÐ VAR 21 STIGS HITI Í DAG! Magnað. Annars erum við bara hress - vorum að smella saman hurð á baðskápinn og bættum nokkrum hillum í hann þannig að hann er orðinn fáránlega svalur. Svo færðum við handklæðin úr efstu hillunni niður í þá neðstu, en tannburstarnir eru ennþá á sama stað. Eins og má lesa hér neðar þá voru feðgarnir afi Henning og afi Úlfar í heimsókn hjá okkur og það voru að koma glóðheitar myndir af þeim inn ásamt nokkrum myndum af spilakvöldi með Conni og Joe. Við erum einnig svo heppin að Árni nokkur Már ætlar að heiðra okkur með nærveru sinni eina nótt næstu helgi. Við munum eflaust láta hann vaska upp og gera eitthvað skemmtilegt saman. Það er líka orðið svakalega stutt í að við komum heim! Ha? Leggjum í hann 7. desember!
Síðan vil ég minna allar fordæmdar sálir á að ég tek að mér draumráðningar, þannig að ef þið vaknið einhvern tímann sveitt um miðja nótt eftir að hafa verið myrt í sturtu af kaktus í martröð þá getið þið skilið eftir Comment og ég svara um hæl. Ef draumarnir/martraðirnar eru ekki þess eðlis að dreymandi/martraðandinn vilji deila þeim með almúganum þá tek ég einnig við tölvupósti og símhringingum í símanum 1-800-CACTUS.
Kveðja,
Henningurinn

|