Nýi bíllinn..

Daginn eftir að Henning fór til USU fékk ég nýja bílinn okkar afhentan, þvílík glæsikerra og bara frábær bíll í alla staði.. Hann hefur staðið sig með eindæmum vel í þessum brjálaða snjó sem hefur verið hér síðan Henning fór enda flokkast hann alveg örugglega undir velútbúna bíla - með spoiler, krómstút, filmum og rafmagni í rúðum, útvarpsfjarstýringu í stýrinu og fullt af loftpúðum Laugh

Þegar kagginn var 10 daga gamall (í gær) hafði ég aldrei þurft að setja á hann bensín og hafði ekki þrifið hann að utan en það var nú samt KLESST á hann! ojjj hvað ég var sár.. Þetta var nú enginn agalegur árekstur, ég var bara óheppin að vera þar sem ég var því það voru tveir aðrir bílar sem lentu í árekstrinum og annar þeirra skaust svo á minn bíl og braut stuðarann og beyglaði númerið að framan.. En það verður bara lagað og þá verður kagginn aftur eins og nýr..

Enginn slasaðist í þessum árekstri - sem er auðvitað fyrir öllu!
-Emman
|