afmæli, heimsókn og kuldi!
23/11/05 19:14
Sæl veriði öll sömul!
Hvað segið þið þá? Héðan er sko allt gott að frétta.. Eins og þið vitið öll þá átti Henning afmæli á mánudaginn var (21.nóv) og var hann vakinn eldsnemma með pökkum og kossum!
í hádeginu fór Henning að kenna fyrirlestur fyrir einn kennara sem var að meta hann og vakti hann að sjálfsögðu mikla lukku! (ég fór sko með og hlustaði og las í bók)..
Við fórum svo heim um kl 14 og horfðum á síðasta þáttinn í 10.seríunni af Friends og borðuðum marengsköku og heimatilbúinn ís! mmmm.... og svo þurftum við að bruna og sækja Sölku í leikskólann og sækja svo Árna Má sem var að fljúga til Boston og gisti hann hjá okkur í eina nótt!
Þegar við komum aftur heim til Providence fórum við út að borða á TGI Friday's og þar var Akkalú sko í stuði í tilefni dagsins, sparkaði og sparkaði og ég hélt bara að hann/hún ætlaði að klóra sig út í gegnum spikið! rosa gaman!
Núna er þessi rosalegi hiti sem kom allt í einu um daginn farinn og núna þykir heimilisfólkinu bara frekar kalt!
og meira að segja þegar við vöknuðum í morgun þá hafði bara snjóað!!! bara smá föl á húsþökum og grasi og mælirinn sagði -1 gráða kl 8.30 í morgun!!
Við Henning skutluðum Sölku í leikskólann kl 9 (hún í snjógallanum sínum) og fórum svo í búðir. Ætluðum fyrst bara að fara í matvörubúð en enduðum á því að fara í 3 búðir og vorum í 4 klst í heildina!! Sóttum svo Sölku í bakaleiðinni og erum núna komin í helgarfrí enda Thanksgiving á morgun!
Við ætlum að hafa það rosalega notalegt í Thanksgiving fríinu okkar - föndra og horfa á sjónvarpið og borða góðan mat..
jæja.. núna eru bara 2 vikur í heimferð og SÓNARINN mikla! þannig að endilega látið í ljós hvort þið haldið að Akkalú sé stelpa eða strákur!!!!
hafið það gott og njótið jólaundirbúningsins!!
Ykkar Emma (og Akkalú

|