ekki skánar það
08/02/08 17:15
ég vaknaði alveg ferlega slæm af grindverkjum (verkir
í grind og lífbeini) í morgun og fannst alveg frábært
að hugsa til þess að ég ætti tíma í nuddi eftir
hádegið en þegar ég var að fara í nuddið þurfti ég að
stíga yfir poll og upp á gangstéttina (yfir snjóhrygg
sem hfjbær hafði búið til á götunni) og ég hlýt að
hafa tekið of stórt skref eða eitthvað því ég hélt ég
myndi ekki hafa það af upp að dyrunum sökum sársauka!
ááááiiiiii... Þetta var alveg svakalega sársaukafullt
og núna er ég með stöðugan verk - kannski svolítið
eins og sviða/bruna tilfinningu í lífbeininu, meira
að segja þegar ég sit.. ég sem hafði alltaf getið
setið grafkyrr og verkjalaus í smástund..
Það verður fróðlegt að sjá hvað Ljósan segir á mánudaginn.. og svo er ég líka búin að panta mér tíma hjá heimilislækninum í næstu viku og vona að hún geti gert eitthvað fyrir mig..
Mjólkurvöru - og rauðs kjöts bindindið virðist ekki vera að hafa þau svakalegu áhrif sem ég var að vonast eftir.. en við gefum þessu nú sjens fram á mánudag (og þá verður sko keyptur ÍS)
vona að þið hafið það gott í þessu brjálaða veðri!!
knús og kossar,
Emma fatlafól!

|