Saltkjöt og baunir, Nei takk!
05/02/08 12:40
þá er bara kominn sprengidagur.. en ég held ég sleppi
saltkjötinu í ár og ég er meira að segja með 2
ástæður fyrir því..
nr 1: ég tók út sprengidaginn í gær ásamt bolludeginum og borðaði yfir mig af Pabbabollum sem eru auðvitað þær allra bestu í heimininum!
nr 2: ég er frekar mikið ólétt og farin að safna bjúg þannig að það er æskilegt að sleppa saltkjötinu..
nr 3: ég er komin í vikupásu frá mjólkurvörum og rauðu kjöti.. Einhver ljósmóðir vill meina að maður lagist af grindargliðnun sleppi maður þessu þannig að ég ætla að prufa..
Kolkan er ennþá lasin og liggur núna sofandi í rúminu, og hrýtur sökum nebbastíflu.. greyins..
Henningurinn kemur svo bara heim í fyrramálið, ég trúi því bara varla að það sé komið að þessu enda búin að bíða eftir þessum degi í 3 vikur og aldrei hefur tíminn verið svona svakalega lengi að líða!
hafið það gott,
Emman

|