Naflastúfur, fjórtándi jólasveinninn

Þeir sem trúa ekki öllu sem þeir sjá í amerískum bíómyndum vita að lítil börn eru með smá stúf eftir af naflastrengnum. Þessi stúfur losnar og dettur síðan af eftir nokkra daga. Þetta gerðist einmitt í gær hjá henni Akkalý, nema hvað við fundum ekki stúfinn. Við leituðum út um allt, Salka leitaði með vasaljósi undir rúminu hjá Akkalý, ég ryksugaði allt og við leituðum í óhreinatauinu til þess að athuga hvort hann hefði nokkuð slæðst með þangað. Ég opnaði meira að segja gamla bleiu til þess að leita að honum... en ekkert fannst. Síðan í gærkvöldi þá fann ég stúfinn hangandi utan í bleiunni sem hún var með... mikill léttir að þurfa ekki að hafa hættu á að gestir og gangandi stígi óvart á hann!
|