*NÝTT, NÝTT, NÝTT*
11/09/07 19:43
ja hérna hér.. þá eru bara fleiri fleiri vikur síðan
ég bloggaði.. ég ætlaði auðvitað ekkert að láta líða
svona langan tíma en svona gerist bara stundum..
Við komum aftur til Ameríkunnar fyrir 8 dögum síðan í rosa hita og raka suma daga en núna undanfarna 3 daga hefur verið skýjað, rigning á köflum og einstaka þruma.. en dagurinn í dag á víst að vera sá síðasti samkvæmt spánni..
Við erum búin að vera að koma okkur fyrir aftur í íbúðinni, pakka upp úr töskum, byrja í skólum og komast á amerískan tíma síðan við komum og hefur bara gengið nokkuð vel.. Kolka er ekki alveg sátt, sennilega hitinn (vonum það
. Hún hefur ekki sofið eins vel á
nóttunni eins og hún hefur alltaf gert og svo er
komin einhver gríðarleg frekja í hana greyið
(vona svo sannarlega að það sé
tímabundið
og hún bara truflast algjörlega ef
henni er bannað eitthvað.. Ákkúrat þessa
stundina er hún samt eins og hugur manns og
situr og litar í litabók
Salka er alsæl með að vera komin aftur, hafði beðið svolítið eftir því að hitta vinkonurnar aftur og byrja í 2.bekk (já þið lásuð rétt!). Nú er hún byrjuð að læra á fullu og fær meira að segja orðalista á mánudögum heim og á að kunna að stafa þá á föstudögum því þá eru þær prófaðar í orðum vikunnar.. Salka er meira að segja búin að fara í eitt afmæli síðan við komum og skemmti sér konunglega.. afmælið var haldið í risastórum leikjasal og Salka fór á hjólaskauta (gamaldags hjólaskauta) og skemmti sér konunglega og var enga stund að ná tökum á því..
Við Henning höfum ákveðið að fjölga okkur enn meira og taka yfir bæði Ísland og Ameríku
neiii kannski ekki alveg en við
ætlum samt að stækka við okkur barnalega séð og
eigum von á nýju kríli um miðjan mars.
skelli inn nokkrum myndum sem hafa verið teknar síðan við komum..
Fyrsti skóladagurinn í 2.bekk í Lincoln School
voða spennt..
Salka og Mrs. Hallan (kennarinn hennar)
Salka við nýja skrifborðið sitt í 2.bekk
Kolka að kíkja á leiktækin í Lincoln School
rosa fjör í rennibrautinni, Kolka fór örugglega 20 ferðir
Sölku finnst líka gaman í rennibrautinni
og að róla
Salka vildi alls ekki kíkja í myndavélina
á flugi!
hafið það gott og ég lofa að vera duglegri að blogga..
knús til allra..
Emman.

|