sef svo illa!

sælinú..

ég hef verið að sofa hálf illa undanfarnar nætur, að miklu leyti út af hita en svo held ég að í undirmeðvitundinni sé það aðallega músagangur sem veldur þessum litla svefni og því að ég hrökkvi upp á næturnar og eigi erfitt með að sofna aftur enda yfirleitt með rosa hjartslátt eftir þessar glötuðu vakningar..
en svo má ég til með að segja ykkur frá því að í nótt þegar ég svaf eins og engill og hafði gert í alveg rúman klukkutíma, hrekk ég upp við það að Henning hafði sprottið upp í rúminu og er á hnjánum til fóta og klappar þvottinum sem ég hafði lagt svo snyrtilega frá mér (fyrir einhverjum dögum síðan) á borðið sem hægt er að rúlla yfir rúmið og ekki nóg með það að Henning er að klappa þvottinum heldur er hann að sussa líka svona eins og hann gerir þegar Kolka vaknar (gerist örsjaldan) um miðjar nætur. Þar sem Kolka er í öðru herbergi þá datt mér nú í hug að hann væri ekki að sussa á hana, heldur væri hann að sussa á mig, því ég auðvitað hrökk upp með andfælum, og hélt þá að hann hefði heyrt í mús og væri að reyna að finna hvar hún væri.. Þegar hugsunin "oó, oó, OÓÓÓ það er mús í herberginu!!" hafði farið allnokkrum sinnum í gegnum huga minn, ákvað ég að spyrja Henning hvað í ósköpunum gengi á og hvort hann hefði heyrt í mús (gleymið því ekki, kæru vinir að hann var að klappa þvottinum) og þá svarar hann sísvona: "Það er svona þegar maður þarf að tvöfalda uppskrift!" og ég auðvitað "WHAT??!! um hvað ertu að tala maður??" Þá lagðist hann aftur á koddann og sagði "sko, ef maður er með uppskrift sem er ..." og ég alveg: "já? er hvað?" og hann: "svona 500 gr hveiti ....... og restin eitthvað annað!!" og þá sagði ég: "ég skil, sneri mér á hina hliðina og reyndi að róa mig eftir þetta músa - False Alarm!

vona að ykkar nætur séu lausar við mýs..
kv. Emma
|