ef það er ekki eitt þá er það annað..

... og ef það er ekki annað þá er það ALLT!!!

já ég veit ekki hvernig þessi meðganga á eftir að enda (jú sennilega með fæðingu barns) en meðgangan á eftir að ganga fram af mér áður en að því kemur! ég fæ alla mögulegar "aukaverkanir" á þessari meðgöngu og hef nú alveg ákveðið að halda því fram að meðganga verði alltaf verri en sú sem var á undan..

Ég fann ekkert fyrir því að ég væri ólétt þegar ég gekk með Sölku, jú, var frekar þreytt fyrstu 12 vikurnar og fékk bjúg í lokin (soldið vel af honum).

Með Kolku fékk ég þreytu fyrstu 12 vikurnar, kúkastíflu dauðans eftir 12 vikur og fram undir lokin, einstaka bakverk og var á mörkum meðgöngusykursýki.

Með þetta Viðhengi fæ ég allt sem ég hef nefnt hér að ofan, nema þreytan var svæsin fram að 18 viku, bakið er að fara með mig þessa dagana og svo er ég öll útsteypt í bólum (Jakk) og hef verið þannig frá því í byrjun.. í hvert sinn sem ég lít í spegil er komin ný bóla - og þó það væri auðvelt þá er ég ekki að ýkja! er að hugsa um að taka niður speglana í húsinu! óþolandi ástand.. og svo er geðið líka ekki sem best í þetta skiptið, hef bara aldrei áður upplifað svona svaka sveiflur á meðgöngu! og það sem verra er, er að sveiflurnar eru yfirleitt niðurávið! Sykursýkin hefur ekki verið greind en ég fer í svoleiðis próf í desember býst ég við..

- Emma
|