nýjar bumbumyndir

jeiiii mér tókst það!!

ég gat sem sagt sett inn nýjar bumbumyndir án þess að Henning væri á svæðinu! Laugh vei vei vei.. Þið getið kíkt á bumbumyndirnar, þær voru teknar í gær þegar ég var komin ákkúrat 28 vikur (af 40)..

Annars gengur lífið sinn vanagang hér á Transit - Úlfar kom til okkar á mánudaginn og gisti eina nótt og það var alveg rosalega gaman að fá hann í heimsókn! En fyrir utan það þá hefur þetta verið bara skóli, leikskóli, búðir, elda, sofa og pínu horft á sjónvarpið!

Við bíðum spennt eftir að mamma og pabbi (Kristín og Dóri) komi til okkar.. Þau koma eftir 10 daga! og svo erum við að byrja að undirbúa flutning þeirra Conni og Joe til okkar.. Erum að reyna að ákveða hvað við eigum að gera við dótið okkar sem er í gestaherberginu, hvert ætti skrifborðið að fara og hvað eigum við að gera við svefnsófann?? Um næstu helgi ætlum við svo að reyna að hjálpa þeim að flytja eitthvað af dótinu þeirra í kjallarann!

Núna er Henning á snjóbretti í Vermont, hann vaknaði kl 5.30 og lagði af stað keyrandi kl 6.00 með Conni, Michelle og David sem er maðurinn hennar Michelle (Henning, Conni og Michelle eru öll í stærðfræðinni).. keyrslan tekur ekki nema 3 klukkutíma hvor leið!

En á meðan Henning er á bretti ætlum við Salka að eiga notalegan stelpudag.

Núna kl korter í 11 er 10 stiga hiti úti.. það er bara sumarblíða!

jæja.. Hafið það sem allra allra best og endilega kommentið í kommentakerfið - það er svooo miklu skemmtilegra að blogga þegar maður veit að einhver er að lesa!

bestu kveðjur,
Emma

|