FerskaEmma

það er með ólíkindum sem ég er fersk á laugardagsmorgni.. búin að fara í búð og kaupa 2 jólagjafir og klukkan rétt að verða 9!! geri aðrir betur!

Emma
|

hárið fær að ferðast!

þá á að leggja land undir fót og skella sér norður á Akureyrina.. þar bíða mín vinkonur og einn sérstakur ungur piltur.. mikið verður gaman fá að knúsa hann og veltast um með honum um alla íbúðina.. já ég er að tala um Daníel Tý, næstum 5 ára snáða..

ég hef verið að velta því fyrir mér hvað ég þarf að taka með mér.. mér er sagt ég þurfi djammföt en ég held ég þurfi líka náttföt, hómý föt, kaffihúsaföt, sundföt og hlaupaföt.. hvað má maður aftur fara með mörg kíló í innanlandsflug?? já, og þá mundi ég eftir öllum skónum sem ég þarf auðvitað! fjúff.. eins gott að fanney á Steisjon bíl..

hafið það gott um helgina, það ætla ég að gera!
-Emma
|

ný og endurbætt Emma

Photo 489
|

smá brúnka og bjórvömb..

þá er ég komin aftur úr húsmæðraorlofinu mínu.. hafði það svakalega gott og fékk smá lit og bjórvömb.. en það var sko engu líkt að vakna í morgun með stelpunum mínum.. þær voru svooo kátar að vera búnar að endurheimta mömmu sína.. og mamman auðvitað ennþá ánægðari með að vera komin heim til þeirra allra..
það var allt svo hreint og fínt hér í nótt að ég held að ég ætti bara að gera þetta reglulega.. Eiginmaðurinn stendur sig greinilega vel sem aðþrengdur eiginmaður..

takk fyrir frábæra viku, Hulda! kossar og knúsar..
Emma
|

Aðþrengdur eiginmaður

Ég ætlaði að láta heyra aðeins í mér, aðþrengdum eiginmanninum hérna í Holtsbúð. Héðan er allt gott að frétta og allir bíða spenntir eftir að fá móður sína heim frá Spáni.

Kveðja,
Henning
|

ég er að fara til spánar!

ef þið hafið ekki heyrt mig segja það þá heyrumst við of sjaldan!
Emma
|

afmælisbarn dagsins í dag er:

ÉG!!
-Emma
|

kaffið bloggar!

nú er það sko dugnaður, maður minn!
í morgun er ég búin að setja í tvær þvottavélar, tvo þurrkara, brjóta saman þvott úr tveimur vélum og ganga frá honum.. bara þetta teldist afrek út af fyrir sig á venjulegum degi en ég er sko ekki hætt! ég er búin að taka úr uppþvottavélinni, setja í hana, vökva blómin, þurrka af, þrífa klósettið, pússa speglana, ryksuga baðherbergið, svefnherbergið og þvottahúsið!!

þess má til gamans geta að ég er búin að fá mér 2 tvöfalda espressó í morgun!! Happy

hafið það gott í blíðunni..
-Emman ofvirka
|

smá blogg..

sælinú!
það er aldeilis langt síðan ég bloggaði.. ég bloggaði að vísu á afmælinu hennar Kolku (6.maíWinking en forritið vildi alls ekki leyfa mér að pöbblissa því.. kannski af því að ég setti nokkrar myndir með.. annars hef ég ekki hugmynd - ég hef aldrei verið þetta tölvunörd sem ég þykist stundum vera..

Síðan barnið lét sjá sig hefur Kolka meira og minna verið veik, fengið 4 (eða 5) sinnum pensilín vegna kvefs og eyrnabólgna, það er meira að segja búið að taka úr henni nefkirtlana og stinga á eyrun..

Barnið fékk nafn um hvítasunnuhelgina.. Hún heitir Hekla eins og svo margir höfðu giskað á Laugh Við erum voða ánægð með nafnið og hún virðist vera það líka..

Hekla hefur verið með magakrampa síðan hún var 2ja vikna en þeir virðast vera aðeins að lagast.. Hún sefur eins og engill á nóttunni, í 7-8 tíma í senn..

Salka er alsæl með systur sínar og knúsar þær og kyssir margoft á dag.. Núna er hún eiginlega komin í sumarfrí - bara skólaslitin eftir - á morgun! og þá byrjar fjörið Laugh Salka fer á klifurnámskeið í eina viku í sumar og svo í sumarbúðir í eina viku og svo langar hana voða mikið að skella sér í skólagarðana.. Hún er nefnilega þvílík áhugamanneskja um mat og finnst fátt skemmtilegra en að elda, baka og bera fram mat (matnum stillt upp á disknum eins og á fínustu og flottustu veitingahúsum heims)..

Við skelltum okkur til Providence í tvær vikur í maí.. Ætluðum að hafa það svakalega notalegt og njóta þess að vera í fríi og pakka niður í rólegheitunum þar sem við vorum að fá 2 meðleigjendur.. En neiiii.. það gekk víst ekki alveg þannig.. Það var allt of mikil vinna að pakka öllu dótinu, og fara í gegnum allt og flokka í þrennt:
#1 : það sem á að selja á Yard Sale vorið 2009 (þegar Henning útskrifast)
#2: Það sem á að fara til Kaliforníu (vorönn 2009)
#3: Það sem á að senda í gám til Íslands..
og svo voru auðvitað mörg hundruð hlutir sem var troðið ofan í töskur því það virtist ómissandi á íslandi ákkrúat NÚNA!

við ætlum að skella okkur í sumarbústað í Kjarnaskógi á föstudaginn og vera þar í viku og núna skal þetta verða notalegt sumarfrí þar sem börnin leika lausum hala í skóginum allan daginn og svo verður grillað og hangið í heitapottinum, ohhh yndislegt.. Búin að panta góða veðrið!

annars bið ég ykkur bara vel að lifa og afsaka bloggleysið!
DSC02383
|

Hún er komin!

Ég vaknaði aðfararnótt laugardagsins 29.mars kl. 01.50 við verk, fór á klósettið og ætlaði að leggjast aftur uppí rúm og reyna að sofa aðeins meira en það gekk ekki. Ég fór því aftur fram og ákvað að taka tímann á milli verkja, ca 5 mínútur á milli en verkirnir agalega sárir.. Ég mundi ekki eftir því að hafa fengið svona sára verki strax þegar systurnar ákváðu að koma í heiminn..

Ég pikkaði í Henning og sagði að ég heldi að barnið ætlaði að koma í heiminn í dag og hvað segir hann: “já, er það?” og sneri sér á hina hliðina!

Ég reyndi að tína til allt dótið sem ég ætlaði að taka með mér á fæðingardeildina og gerði svo aðra tilraun til þess að vekja Henning, sem ákvað að fara á fætur í þetta skiptið Þá var kl 03.00.

Við hringdum í Fríðu og báðum hana um að passa Kolkuna sem svaf.
Henning hringdi á Hreiðrið og tilkynnti komu okkar og lét taka frá herbergi með baði.

Kl 04.00 lögðum við af stað á Landspítalann og lentum auðvitað á öllum rauðu ljósunum á leiðinni og ég þurfti að hafa mig alla við að einbeita mér að einhverju í hríðunum. Við komum upp á Hreiður kl. 04.15 og fórum strax á fæðingarherbergið og þar var ég sétt í mónitor í 20 mínútur og mér leið voða illa á meðan, gat engan veginn verið og var með verki á milli hríða líka þannig að ég náði ekki að hvílast á milli hríða.

Eftir 20 mínútur í mónitornum athugaði ljósan útvíkkunina sem var milli 8 og 9.. Ég spurði ljósuna hvort ég mætti fara í baðið og hún sagði að það væri ekki víst að ég myndi ná því en hún skildi láta renna í baðið.. Ég sagði henni að ég hefði nú lent í því með Kolkuna að vera með milli 8 og 9 í útvíkkun en hún fæddist ekki fyrr en 5 tímum seinna þannig að ég vissi alveg að þetta gæti tekið tíma.

Henning sendi sms á mömmu mína og hún spurði hvort hún ætti að koma.”Jáááá!” Sagði ég þá.

Um þetta leiti fór ég að finna fyrir rembingsþörf en ég hafði aldrei lent í því fyrr en eftir nokkra rembinga með systurnar, s.s. ljósan hafði þurft að segja mér að ég mætti byrja að rembast og svo eftir nokkra rembinga kom rembingsþörfin.

Ég fór á klósettið og þá kom þessi svakalega rembingsþörf aftur en ég hélt aftur af mér þangað til ég komst aftur upp í rúmið.
Þarna var ég á fjórum fótum á grjónapúða og rembdist með hríðunum og í því kemur mamma inn.

Vatnið byrjaði að leka og var grænt (hún búin að kúka í legvatniðWinking. Ljósan sagði að það væri æskilegast að kalla á barnalækni til þess að vera viðstaddan fæðinguna svo hægt væri að sjúga upp úr skvísunni þegar hún kæmi. Einnig vildi hún setja upp nál í handlegginn á mér ef ég skyldi þurfa dripp og ég sagði henni að hún yrði að vera ansi snögg að því, því það var að koma hríð.

Í þeirri hríð kom höfuðið og í næstu kom búkurinn!! Stelpuskottan var fædd kl. 05.13 – klukkutíma eftir að við komum á Hreiðrið!

Barnalæknirinn náði ekki að svara og ljósan sleppti því að setja upp nálina. Ég náði aldrei að prufa baðið né fá glaðloft né nálastungur.. Þetta var alveg ótrúleg fæðing..

Hún var 4325 gr og 52.5 cm þegar hún fæddist!

IMG_5176

IMG_5203
|

engar fréttir = góðar fréttir?

hæhæ og hó..
langaði bara að segja ykkur, sem kíkið oft á klukkutíma að það er ekkert að gerast.. Bólar ekkert á Rósu Aðalbjörgu (eins og tengdapabbi er farinn að ljúga að barnið eigi að heita).. En mikið verður gaman að hitta þennan þrjóskupúka þegar hún loksins lætur segjast og kemur út...
Salka var lasin í gær, byrjaði að kvarta undan höfuðverk, magaverk og máttleysi í höndunum á miðvikudagsmorguninn en fór nú samt í skólann því ekki var hún með hita.. en svo var hún bara ennþá eins þegar hún var búin í skólanum og fékk svo hita seinnipartinn og var því ákveðið að hún færi ekki í skólann daginn eftir en svo var hún bara alls ekki eins slæm eins og ég hafði átt von á þegar hún vaknaði.. svona mættu sko allar pestir vera..

Kvefið sem ég er búin að vera með í hátt í 10 daga virðist ekkert ætla að fara á næstunni.. en það hlýtur nú að fara þegar sumarið kemur með allri sinni sól og hita!!

hafið það gott..
- Emman
|

barninu líður of vel!

ég var send í Monitor og mat (ekki hádegismat) á Lansann í dag og allt lítur voða vel út, eiginlega of vel.. Barninu virðist líða það vel að það ætlar ekkert að koma út strax og ákvörðun var tekin um að ég verði sett af stað á sunnudagsmorguninn ef ekkert gerist fyrir það! jei, það sér fyrir endann á þessari meðgöngu!
vildi bara láta ykkur vita Happy
vonandi hafið þið það jafn gott og bumbubúinn!
Emma
|

hvar er þetta barn??

ég verð nú bara að viðurkenna að ég er orðin hálf óþolinmóð að bíða eftir þessu barni.. ég hefði sko aldrei giskað á að ég ætti eftir að ganga lengst með 3ja barnið.. ég hef að vísu sólarhring til að jafna Sölkumeðgöngu en ég get ekki ímyndað mér að barnið sé eitthvað á leiðinni á næstunni.. allt með kyrrum kjörum hér á bæ..
- Emma
|

Ekkert barn!

jæja þá eru allmargir farnir að hringja og athuga hvort stúlkubarnið í bumbunni fari ekki að láta sjá sig og ég vil bara segja við ykkur að ég er ekki ennþá gengin 41 viku sem virðist vera mín meðgöngulengd svo þið getið beðið róleg fram á annan í páskum.. En svo er enginn hætta á því að við leynum því eitthvað þegar barnið lætur sjá sig!

þið verðið bara að bíða róleg eins og við hin!
-Emma
|

8 ára barn!

Nákvæmlega núna, kl 17.49, eru 8 átta ár síðan ég sá Sölkuna mína í fyrsta skiptið! og mikið var hún falleg og er að sjálfsögðu ennþá!

TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN SÆTA MÍN!

En það er nú soldið skrítið með hana Sölku, hún virðist eldast hraðar en ég því ég er ennþá bara rúmlega tvítug! Happy
IMG_0175
IMG_0304
IMG_0288_2
|