Lau - Janúar 13, 2007

Ótrúlega gaman af þessu!


Ritstjórn blaðsins er ekki í nokkrum vafa um hvernig sú framtíð á að líta út. Allar greinarnar eru litaðar gagnrýnilausri frjálshyggju eins og hún var upp á sitt besta í lok 9. áratugar síðustu aldar. Ég get ekki sagt annað en að ég hafi áhyggjur af háskólauppbyggingu á Íslandi ef hinir nýju háskólar eru brenndir marki HR-stúdenta sem virðast hafa takmarkalausa trú á sjálfum sér og frelsinu. Þetta minnir sorglega mikið á frelsaða Sovétkomma og hefði allt eins geta verið eitt af opinberunarritum ’68-kynslóðarinnar en hér líklega um að ræða X-kynslóðina frægu. Allavega vitum við þá núna hvað X-ið stendur fyrir.

Nánar hér .

Posted at 05:45 PM    

Þri - Janúar 2, 2007

Er þessu diskur ekki....


... must have?



Einhver sem á hann?

Posted at 11:08 AM    

Fös - Desember 15, 2006

Ég var eitthvað huxi í gær.....


... man ekki um hvað.



En skyndilega fór þessi kvikmynd, Innerspace frá árinu 1987 að leita á mig. Hef einu sinni séð hana, líklega var það árið 1987, fannst hún mögnuð. Fékk óstjórnlega löngun um að fara og verða mér út um hana og horfa á hana aftur.

Hér má skoða IMDB síðu myndarinnar.

Trailer á YouTube.

Hefur einhver séð þessa mynd nýlega?

Posted at 12:26 PM    

Silvia Brown slær í gegn


Einhver sá frægasti miðill Bandaríkjanna. Þeir vestra hafa jafnvel gerst svo djarfir að kalla hana "Our own Thorhallur midill".

Hér er hún í þvílíku aksjóni.

Posted at 10:50 AM    

Fim - Desember 14, 2006

Minn maður Johan Norberg.....


... með góða færslu, eins og endranær á bloggi sínu.

Mæli með að fólk lesi viðtal við hann í Háskólablaðinu. Má nálgast rafræna útgáfu hér . (mun hraðari tengill en áður)


Thursday, 14/12/2006:
12:10 - I CAN´T WAIT: 
(Parental Advisory: This post contains good news. If you are not used to this after having followed the media the last few months, don´t read too much at once.)


The World Bank has just published its Global Economic Prospects 2007, and it tries to say something intelligent about what current knowledge and present trends say about the next 25 years. And it has some reallly bad news for pessimists:
- Growth per capita in developing countries will be 3.1 percent annually, compared to 2.1 percent since 1980. (And this is a moderate estimate compared to the last five years´ 4.6 percent!)

- The average income in developing countries will more than double, from $4 800 today to $11 000 in 2030 (similar to the Czech Republic´s income per capita today).

- Developing countries´ part of global output will increase from one-fifth to nearly one-third, purchasing power will surpass half.

- Coutries like China, Mexico and Turkey will have living standards close to Spain´s today.

- The "middle class" (earning $4 000-17 000 per capita) in developing countries will increase from 400 million to 1.2 billion.

- Extreme poverty (<$1/day) will be reduced from 1.1 billion to 550 million - from 20 percent to 8 percent of the developing country population (it was 40 percent in 1980).

Caveats: The World Bank points out that this improvement could be much faster if we see big technological breaktroughs in the years to come (which we will) and if we see faster reforms (which we can make happen).

Posted at 02:22 PM    

Mið - Desember 13, 2006

Var að átta mig á þeirri ævintýralegu staðreynd....


... að aðeins 4 árum eftir þennan fund hans, Friedmans og fleiri var hann orðin...... Fjármálaráðherra!!!



Þarna gerðist hann sekur um að misskilja undirstöðu hagfræði, peningamarkaðskenninguna, sem mér skilst að sé talin klassík í dag og hagstjórn Íslands.

Magnaður hann forseti vor.

Posted at 10:52 AM    

Þri - Desember 12, 2006

Þvílík tímasóun....


.... að fá Friedman í Sjónvarpið, til þess eins að þrír apakettir gætu gert heiðarlega tilraun til að snúa út úr orðum hans og afbaka kenningar .



Það eina sem þessi þáttur virðist hafa áorkað er að leggja grunn að framtíðar útúrsnúningum Stefáns "prófesors" Ólafssonar í sjónvarpi.

Posted at 12:51 PM    

Mán - Desember 11, 2006

Var að átta mig á því.....


... mér til mikils hryllings að Steinn er hættur að blogga.

Synda að missa þennan kraftmikla og skemmtilega bloggara af alnetinu.

Fyrir þá sem vilja rifja upp hans bestu spretti mæli ég með Mitt fyrsta maraþon frá 21. ágúst 2004, ég hefði aldrei trúað því að svo skemmtileg lesning væri til með þessum efnistökum.

Posted at 07:49 PM    

Háskólablaðið hefur litið daxins ljós




Engin ætti að láta það framhjá sér fara.

Góðar fréttir.
Heimur batnandi fer.
Maðurinn leysir fleiri vandamál en hann skapar.
Við erum að meginstefnunni góð.

Hér má sækja 4.2 mb útgáfu af ritinu. Ctrl og músarsmella (MacOS) eða hægrimúsarsmella (MacOs og Win... og væntanlega líka Linux) og gera Save as/Download file. Eða bara einfaldlega smella til að skoða þetta í vafranum.

Viðbót:

Hef komist að því að þessi server sem ég er að blaðið á eins og stendur er fáránlega hægur.

Mun setja inn nýjan hlekk um leið og ég hef fengið þetta inn annars staðar.

Posted at 06:10 PM    

Mán - Desember 4, 2006

Játning





Ég hef margoft slegið um mig með hugtakinu sprotafyrirtæki, en ég veit ekkert hvað það þýðir.

Posted at 03:02 PM    

Fös - Desember 1, 2006

Hvað vantar?


Ég var að komast að því í gær, að ég hef sungið þetta lag með röngum texta gegnum árin. Svona hef ég kyrjað:

Það vantar spýtu og það vantar sög.
Það vantar málningu og tjörulög.

En nú segir mér hugur um að þetta skuli sungið svona:

Það vantar spýtu og það vantar sög.
Það vantar málningu og fjörug lög.

Mér finnst reyndar mín útgáfa meika meiri sense.

Posted at 10:37 AM    

Þri - Nóvember 21, 2006

Fjórða erindi





Hélduð kannski að þetta væri búið. Nei svo er aldeilis ekki. Það er komið að fjórða erindinu. Hér fer Bubbi á ákveðið flug, þrátt fyrir að ekki sé dýrt kveðið. Einkennilegir stuðlar í fyrsti línu, en ekki er ég frá því að Bubbi freistist til að láta essin í húsvörðurinn og svín stuðla saman. Ennþá fer hann óvarlega með 1. bekkingarímið með því að mín og þín. En Bubba er að sjálfsögðu fyrirgefið slíkt, enda meistarastykki á allan annan hátt hér á ferð.

Lyftan var biluð, húsvörðurinn kallaði mig svín.
Sagðist hata alla poppara, ég hélt hann væri að gera grín.
Ég sagðist að ég væri að heimsækja stúlku hún væri unnusta mín.
Hann sagði mér er nákvæmlega sama þó hún sé ekki stúlkan þín.

Hvaðan kemur þessu húsvörður og hvaða hlutverki gegnir hann? Er hann að varðhundur vímunnar? Það er í það minnsta degi ljósara að hann myndi einna helst vilja varna inngöngu Bubba. Er ekki líklegast að lyftan sé tákn hins kemíska vímuefnis, sem færir mann upp eða niður. Bubbi liggur í móki í sófanum, berst við hvítuna og það rennur upp fyrir honum að "lyftan" var biluð. Hún var ekki að færa hann á réttan stað.

Varðhundur vímunnar reynir að koma vitinu fyrir Bubba, en það er ekki að gera sig. Hann telur sig eiga stefnu mót við unnustu sína. Táknmynd verunar sem ég kýs að kalla Freðínu. En hann mun ekki komast þangað að þessu sinni.

Þetta er það sem ég les úr 3 fyrstu línunum.

En það skiptir litlu máli hversu oft ég les 4. línuna. Ég fæ bara engan botn í hana. Hallast ég eina helst að því að Bubbi hafi verið búin að gleyma hvernig 3. lína hljómaði þegar hann reit 4. línu. Segir mér hugur um að vímann leiki þarna ákveðna rullu.

En hér er með öllu ljóst að víman er dimm og Bubbi er ekki á hamingjusömum stað.

Hvernig endar þetta allt sama?.... kemur í ljós í 5. erindi.

Posted at 10:54 AM    

Flatskjár handlagna heimilismansins




Að framan:



Að aftan:



Posted at 10:21 AM    

Það var þá aldrei.....


.... að það fór að færast fjör á síðuna. Þurfti ekkert minna en Bjartmar Gunnlaugs til.

Gestur nr. 10.000 á síðu mína skal hljóta gúmmibjörn að launum.

Sem minnir mig á það... skulda ég ekki ennþá gesti nr. 1.000 latte?

Posted at 10:10 AM    

Þri - Nóvember 14, 2006

Mundi ekki....


.... að hér er flokkur sem heitir Vangaveltur.

Hef greinilega verið lítið huxi uppá síðkastið.

Rétt er þó að varpa einn fram.


Hvað varð um Bjartmar Guðlaugsson?

Posted at 03:48 PM    

















©