Þri - Janúar 2, 2007

Er þessu diskur ekki....


... must have?



Einhver sem á hann?

Posted at 11:08 AM    

Fös - Desember 15, 2006

Ég var eitthvað huxi í gær.....


... man ekki um hvað.



En skyndilega fór þessi kvikmynd, Innerspace frá árinu 1987 að leita á mig. Hef einu sinni séð hana, líklega var það árið 1987, fannst hún mögnuð. Fékk óstjórnlega löngun um að fara og verða mér út um hana og horfa á hana aftur.

Hér má skoða IMDB síðu myndarinnar.

Trailer á YouTube.

Hefur einhver séð þessa mynd nýlega?

Posted at 12:26 PM    

Silvia Brown slær í gegn


Einhver sá frægasti miðill Bandaríkjanna. Þeir vestra hafa jafnvel gerst svo djarfir að kalla hana "Our own Thorhallur midill".

Hér er hún í þvílíku aksjóni.

Posted at 10:50 AM    

Fim - Desember 14, 2006

Minn maður Johan Norberg.....


... með góða færslu, eins og endranær á bloggi sínu.

Mæli með að fólk lesi viðtal við hann í Háskólablaðinu. Má nálgast rafræna útgáfu hér . (mun hraðari tengill en áður)


Thursday, 14/12/2006:
12:10 - I CAN´T WAIT: 
(Parental Advisory: This post contains good news. If you are not used to this after having followed the media the last few months, don´t read too much at once.)


The World Bank has just published its Global Economic Prospects 2007, and it tries to say something intelligent about what current knowledge and present trends say about the next 25 years. And it has some reallly bad news for pessimists:
- Growth per capita in developing countries will be 3.1 percent annually, compared to 2.1 percent since 1980. (And this is a moderate estimate compared to the last five years´ 4.6 percent!)

- The average income in developing countries will more than double, from $4 800 today to $11 000 in 2030 (similar to the Czech Republic´s income per capita today).

- Developing countries´ part of global output will increase from one-fifth to nearly one-third, purchasing power will surpass half.

- Coutries like China, Mexico and Turkey will have living standards close to Spain´s today.

- The "middle class" (earning $4 000-17 000 per capita) in developing countries will increase from 400 million to 1.2 billion.

- Extreme poverty (<$1/day) will be reduced from 1.1 billion to 550 million - from 20 percent to 8 percent of the developing country population (it was 40 percent in 1980).

Caveats: The World Bank points out that this improvement could be much faster if we see big technological breaktroughs in the years to come (which we will) and if we see faster reforms (which we can make happen).

Posted at 02:22 PM    

Mið - Desember 13, 2006

Var að átta mig á þeirri ævintýralegu staðreynd....


... að aðeins 4 árum eftir þennan fund hans, Friedmans og fleiri var hann orðin...... Fjármálaráðherra!!!



Þarna gerðist hann sekur um að misskilja undirstöðu hagfræði, peningamarkaðskenninguna, sem mér skilst að sé talin klassík í dag og hagstjórn Íslands.

Magnaður hann forseti vor.

Posted at 10:52 AM    

Þri - Desember 12, 2006

Þvílík tímasóun....


.... að fá Friedman í Sjónvarpið, til þess eins að þrír apakettir gætu gert heiðarlega tilraun til að snúa út úr orðum hans og afbaka kenningar .



Það eina sem þessi þáttur virðist hafa áorkað er að leggja grunn að framtíðar útúrsnúningum Stefáns "prófesors" Ólafssonar í sjónvarpi.

Posted at 12:51 PM    

Mán - Desember 11, 2006

Var að átta mig á því.....


... mér til mikils hryllings að Steinn er hættur að blogga.

Synda að missa þennan kraftmikla og skemmtilega bloggara af alnetinu.

Fyrir þá sem vilja rifja upp hans bestu spretti mæli ég með Mitt fyrsta maraþon frá 21. ágúst 2004, ég hefði aldrei trúað því að svo skemmtileg lesning væri til með þessum efnistökum.

Posted at 07:49 PM    

Háskólablaðið hefur litið daxins ljós




Engin ætti að láta það framhjá sér fara.

Góðar fréttir.
Heimur batnandi fer.
Maðurinn leysir fleiri vandamál en hann skapar.
Við erum að meginstefnunni góð.

Hér má sækja 4.2 mb útgáfu af ritinu. Ctrl og músarsmella (MacOS) eða hægrimúsarsmella (MacOs og Win... og væntanlega líka Linux) og gera Save as/Download file. Eða bara einfaldlega smella til að skoða þetta í vafranum.

Viðbót:

Hef komist að því að þessi server sem ég er að blaðið á eins og stendur er fáránlega hægur.

Mun setja inn nýjan hlekk um leið og ég hef fengið þetta inn annars staðar.

Posted at 06:10 PM    

Mán - Desember 4, 2006

Játning





Ég hef margoft slegið um mig með hugtakinu sprotafyrirtæki, en ég veit ekkert hvað það þýðir.

Posted at 03:02 PM    

Fös - Desember 1, 2006

Hvað vantar?


Ég var að komast að því í gær, að ég hef sungið þetta lag með röngum texta gegnum árin. Svona hef ég kyrjað:

Það vantar spýtu og það vantar sög.
Það vantar málningu og tjörulög.

En nú segir mér hugur um að þetta skuli sungið svona:

Það vantar spýtu og það vantar sög.
Það vantar málningu og fjörug lög.

Mér finnst reyndar mín útgáfa meika meiri sense.

Posted at 10:37 AM    

Þri - Nóvember 21, 2006

Það var þá aldrei.....


.... að það fór að færast fjör á síðuna. Þurfti ekkert minna en Bjartmar Gunnlaugs til.

Gestur nr. 10.000 á síðu mína skal hljóta gúmmibjörn að launum.

Sem minnir mig á það... skulda ég ekki ennþá gesti nr. 1.000 latte?

Posted at 10:10 AM    

Þri - Nóvember 14, 2006

Mér hefur ekki enn tekist.....




.... að komast að því hvar mörk mín liggja varðandi kaffidrykkju..... öfugt við aðra drykkju, virðist ég geta staðið flest af mér sem rennur úr könnunni.

Posted at 02:58 PM    

Fim - Nóvember 9, 2006

Loxins....


....réðst ég í það verk að breyta því sem er á fóninum og á náttborðinu.

Posted at 01:23 PM    

Fim - Nóvember 2, 2006

Skopmyndir


Ætlar engin vestrænn fjölmiðill að birta þessar skopmyndir?

Af mbl.is

Erlent | AP | 2.11.2006 | 11:59
Marokkómaður fékk verðlaun fyrir skopmynd af helförinni
Stjórnvöld í Íran veittu í gærkvöldi marokkóskum listamanni fyrstu verðlaun í samkeppni um skopmyndir af helförinni. Segja Íranar að myndirnar í keppninni lýsi hatri á kúgurum, en ísraelska utanríkisráðuneytið sagði írönsk stjórnvöld gengin í lið með þeim sem afneiti helförinni.
Íranar segja að Palestínumenn hafi óbeint orðið fórnarlömb morða nasista á sex milljónum gyðinga í Evrópu í síðari heimsstyrjöld.
„Palestínumenn hafa orðið fórnarlömb villandi sagnfræði Síonista,“ sagði Hossein Saffar Harandi, menningarmálaráðherra Írans. „Skopmyndateiknararnir lýsa í verkunum hatri sínu á kúgurum og ást sinni á palestínskum fórnarlömbum.“
Talsmaður ísraelska utanríkisráðuneytisins sagði að fram til þessa hefðu einungis nýnasistar neitað því að helförin hafi átt sér stað, en nú hafi írönsk stjórnvöld tekið undir með þeim.

Posted at 01:49 PM     Read More  

Þri - Október 31, 2006

Vændi að verða mjög aðlaðandi atvinnugrein....


.... í Noregi.

Af mbl.is

Erlent | mbl.is | 31.10.2006 | 10:51
Vændiskonur í Noregi fái undanþágu frá skatti
Fjármálaráðherra Noregs, Kristin Halvorsen, segir til greina koma að veita konum sem stundi vændi undanþágu frá skatti. Markmiðið sé að gera konunum kleift að komast út úr vítahring sem neyði þær út í vændi. Dæmi séu um að konur geti ekki hætt vegna þess að þær þurfi að vinna sér inn peninga til að greiða skattaskuldir, segir Halvorsen.
Frá þessu greinir fréttavefur Aftenposten.
Í fjármálaráðuneytinu verði reglugerðir skoðaðar vandlega og farið yfir gagnrýni áður en tekin verði ákvörðun í málinu.
Þingkonan Inga Marte Thorkildsen, sem er líkt og Halvorsen í Sósíalíska vinstriflokknum, segir að ríkið sé komið í hlutverk dólgsins þegar það neiti að skilgreina vændi sem starf en innheimti engu að síður skatta af tekjum þeirra sem það stundi.
Vændi er löglegt í Noregi, en ekki sem skipulögð starfsemi.

Posted at 02:31 PM    

















©